157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:19]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Af hverju á þingið að hafa eitthvað að segja um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu? Af því að það er þingið. Ég get ímyndað mér að hv. þingmaður veigri sér við því að að tjá sig eitthvað um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu eftir þá umræðu sem mun eiga sér stað í sumar. Margir þingmenn vilja auðvitað forðast að gefa upp afstöðu sína í málinu. Það hefur reyndar komið mér á óvart hérna í dag að heyra þingmann eftir þingmann heykjast á því að viðurkenna að hann vilji ganga í Evrópusambandið, meira að segja þingmenn þeirra flokka sem hafa haft þá stefnu að ganga í Evrópusambandið. Hæstv. forsætisráðherra líka. Hæstv. forsætisráðherra vildi ekkert gefa upp um það hvaða afstöðu hún hefði til þess að ganga í Evrópusambandið, hvaða afstöðu hún myndi hafa til einhvers aðildarsamnings.

Ég bara nefni þetta, að mér finnst eðlilegt að þingið eða þingmenn fái tækifæri til að vega og meta þau gögn sem lögð verða fyrir í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu til að geta lýst skoðun sinni og afstöðu til hennar. Til þess eru kjörnir fulltrúar. Þeir eru til þess að marka stefnu og eru kosnir til þess. Þeim ber skylda að lýsa afstöðu sinni til mála og það gera þeir hér í þessum ræðustól. Það gera þeir líka í nefndarstörfum og mér finnst náttúrlega undarleg afstaða hv. þingmanns að viðurkenna það að við séum sammála um að það þurfi að liggja fyrir upplýsingar um kostnaðinn við aðildarviðræður en að þær eigi svo bara að detta af himnum ofan eftir að þingið afgreiðir þessa þingsályktunartillögu. Hvaðan eiga þær að koma? Hver er til þess bær að óska eftir þessum upplýsingum annar en þingið? Það eru engin grasrótarsamtök hérna úti sem hafa valdheimildir til þess að óska eftir gögnum um þetta mál. (Forseti hringir.) Það gerir það enginn nema þingið að óska eftir þessum upplýsingum.