157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:23]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Ég hlýt að spyrja á móti, þótt það sé ósanngjarnt í seinna andsvari, en ég hlýt að spyrja á móti: Hvað hræðist hv. þingmaður? (IngÞ: Ég hræðist ekki ... )Hræðist þingmaðurinn að koma hér aftur saman, að þingið fái að tjá sig degi fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu? Hvað hræðast þingmenn við það? Í öllu falli liggur ekki fyrir (Gripið fram í.) neinn rökstuðningur fyrir því að halda þessa þjóðaratkvæðagreiðslu þegar þing er ekki að störfum; það liggja engin rök fyrir því. (Gripið fram í.) Það er undarlegt, mér finnst það undarlegt og ef það eru einhver rosalega góð rök fyrir því þá kalla ég eftir því að hv. utanríkismálanefnd særi þau fram og þau verði rædd hér við síðari umræðu. Það var nú bara það sem ég vildi sagt hafa. Ég man ekki hvort hv. þingmaður var með einhverja aðra spurningu til mín um þetta.

Ég skil bara ekki þennan asa á þessu máli. Málið var ekki á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Það liggur hins vegar fyrir og menn tefla því fram og flagga því hér stöðugt að um þetta hafi verið samið á milli ríkisstjórnarflokkanna og að þetta hafi legið fyrir í langan tíma. Þess þá heldur spyr ég: Af hverju mátti ekki leggja þessa aumu og lélegu þingsályktunartillögu fram fyrir löngu í samráðsgátt? Hvað er það í þessari þingsályktunartillögu og þessum texta sem menn þorðu ekki að leyfa fólki að tjá sig um í samráðsgátt? Af hverju mátti ekki flagga þessu þótt ekki væri nema fyrir tveimur vikum síðan eða í haust? Hvað er það í þessari þingsályktunartillögu sem mátti ekki koma fram fyrr en með blaðamannafundi á föstudaginn? Ég spyr: Af hverju? Þetta er alveg óskiljanlegt, algerlega óskiljanlegt af því að það er ekkert í þessari þingsályktunartillögu sem kemur á óvart nema hvað hún er ofboðslega léleg og lítil að vöxtum. Þetta er alveg stórfurðulegt og ég hvet hv. utanríkismálanefnd til að taka málið vel til skoðunar. Mér finnst koma til greina að fundir hv. utanríkismálanefndar verði opnir, (Forseti hringir.) hver einn og einasti í umræðu um þetta mál, hver einn og einasti.