157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:25]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir ágætisræðu. Hér hefur verið rætt aðeins um þingið, þjóðina, fallegt samtal og ýmislegt þannig. Mér hefur fundist ákveðinn hópur þingmanna tala þingið niður með því að segja að þingið þurfi í rauninni ekki að vera starfandi fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, að þingmenn séu einhvers konar elíta sem skipti ekki máli. Hér eigum við sem sagt ekki að geta verið og kallað eftir upplýsingum sem þingmenn heldur eigum við bara að láta sigla í sumar og kjósa í sumar. Hér eru engin samningsmarkmið komin fram eins og hv. þm. Sigríður Á. Andersen nefnir. Það er sérstakt að kjósa — sjálfur vil ég kjósa og koma þessu máli frá en þá þarf að liggja fyrir um hvað er verið að kjósa. Mín spurning til hv. þingmanns er þessi: Á hvaða stað verður íslensk þjóð komin ef það verður meiri hluti fyrir jái 29. ágúst í sumar? Hvert erum við komin í vegferðinni? Er þetta eitthvað meira en að segja bara já og hefja aðildarviðræður? Erum við komin lengra en það? Ég held að fólk sem kýs núna í sumar eigi rétt á því að vita — kannski getur þingmaður ekki alveg svarað því fullkomlega en vonandi getur hann það: Á hvaða stað erum við komin 29. ágúst í sumar ef það verður sagt já?