þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Áður en ég svara þessari spurningu þá vil ég nefna vegna orða hv. þingmanns um elítu hér í þessum þingsal — og það er alveg rétt að bent hefur verið á það að einhverjir líti á sig sem elítu — að eina elítan í þessum þingsal er fólkið sem situr á ráðherrabekknum, fólkið sem tekur ekki þátt í umræðunni um málið. Formenn ríkisstjórnarflokkanna, hæstv. forsætisráðherra, sem var hér í þingsal í morgun hefur ekki áhuga á að flytja eina einustu ræðu í þessu mikla máli sem þau lýsa sem ríkisstjórnarmáli, að þetta sé stórt mál þeirra. Formaður Flokks fólksins lætur ekki sjá sig hér. Hæstv. utanríkisráðherra fór, held ég, eftir þrjár, fjórar ræður í dag. Hvar er þetta fólk? Þetta er hin eiginlega elíta í þessum þingsal sem telur sig hafna yfir málefnalega umræðu um þeirra eigið mál. Ég hefði haldið að þau væru að fagna þessu máli, þau myndu raða sér hér öll í ræðustólinn til að koma á framfæri þessum sjónarmiðum, selja fólkinu þessa hugmynd að segja já 29. ágúst. En hvað gerist 29. ágúst ef 50% þjóðarinnar segir það? Við vitum ekkert hversu margir taka þátt. Það er ekki víst að það verði 50% þjóðarinnar sem segi já, það getur verið að það verði 40% þjóðarinnar sem segi já, en atkvæðagreiðslan skoðist samt þannig að það eigi að fara í aðildarviðræður. Ég skal alveg segja hv. þingmanni hvað fer þá fram. Þá hefjast aðildarviðræður. Þá hefst aðlögun; aðlögun Íslands, aðlögun íslensks regluverks, aðlögun íslenskra stofnana að samningspökkum Evrópusambandsins. Út á það ganga aðildarviðræður ESB. Þær ganga út á það að aðildarríkið, umsóknarríkið, verður að byrja að aðlaga sig (Forseti hringir.) að löggjöf Evrópusambandsins og að öllum pökkum, einum á eftir öðrum.