þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágæt svör og grunaði að ég kæmi ekki að kofanum tómum þar. En í ræðu sinni nefndi hv. þingmaður samningsmarkmið. Mig langar að fá að vitna í orð núverandi stækkunarstjóra ESB, Mörtu Kos. Hún var spurð um ferlið, hvort það væri hægt að fá varanlegar undanþágur, t.d. í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum, þegar Noregur var í samtali við ESB. Þá hefst tilvitnun, með leyfi forseta:
„Þetta snýst að miklu leyti um það að aðlaga löggjöf umsóknarríkisins að löggjöf Evrópusambandsins. Almennt verða ný ríki að samþykkja allar reglurnar. En stundum er mögulegt að fá aðlögunartímabil.“
En það eru engar varanlegar undanþágur. Því spyr ég hv. þingmann um samningsmarkmið: Er hægt að vera með samningsmarkmið í einhverju þegar það eru engar varanlegar undanþágur sem hægt er að sækja um þegar maður gengur inn í sambandið? Er hægt að vera með einhver samningsmarkmið? Jú, vissulega getum við samið um einhverjar sértækar tillögur sem síðan er hægt að strika út með einu pennastriki hjá stóru þjóðunum. En er hægt að tala um samningsmarkmið þegar það er ekkert um að semja?