þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Jú, það er vissulega hægt að tala um samningsmarkmið og að sjálfsögðu þarf Ísland að vera með samningsmarkmið. Markmiðin þurfa hins vegar að vera skýr. Frá mínum bæjardyrum séð er útilokað annað en að fari Ísland í aðildarviðræður við Evrópusambandið verði það með skýr samningsmarkmið, m.a. það sem er alveg ófrávíkjanleg krafa af minni hálfu; að Ísland fari í þær viðræður með það að markmiði að taka ekki upp, eða fá varanlega undanþágu frá, sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Það er svona grundvallaratriði, fyrsta samningsmarkmiðið. Það er samningsmarkmið. Það þarf að liggja fyrir og vera skjalfest af íslenskum stjórnvöldum áður en farið er í þessar viðræður að eitt markmiðið sé það að sjávarútvegskaflinn verði ekki tekinn upp af íslenskum stjórnvöldum, af íslenska ríkinu. Það hafa menn ekki verið tilbúnir til þess að viðurkenna hér og þrátt fyrir að hæstv. ráðherra hafi verið spurður um þetta þá hafa menn talað um að það sé margt í mörgu. Það eru ýmsir hagsmunir, jafnvel varnarhagsmunir. Það er augljóst að hæstv. ráðherrar líta svo á að þetta sé spurning um einhvers konar hagsmunamat þar sem menn ætla að vega og meta ýmsa hagsmuni Íslands; uppsjávarafla kannski með tilliti til varnarmála eða hermála. Þetta er hlægilegt markmið, þótt vísað sé til þess í þingsályktunartillögunni að það sé ein af ástæðum þess að menn séu að fara í þetta, eitthvað varnarsamstarf. Það er hlægilegt, lítilmannlegt og lítilfjörlegt að setja þetta fram með þessum hætti. Samningsmarkmiðin verða að koma skýrt fram og með þessum orðum: Að það sé skilyrði Íslands að sameiginleg sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins verði aldrei tekin upp hér.