þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir prýðisræðu. Hv. þingmaður fór um víðan völl um alls konar hagsmuni, auðlindir og annað sem er auðvitað hér undir og skiptir máli að fá fram hið rétta og sanna þegar fram vindur. Varðandi sjávarútveginn er alveg vitað mál að við höfum auðvitað ákveðna sérstöðu hér á Íslandi. Við erum held ég eina landið sem umsóknarríki sem reiðir sig svona mikið á sjávarútveg. Væntanlega færum við á þeim grunni í samningaviðræður um það hvernig við myndum vilja hantera þessi mál. Ég spyr hv. þingmann í fyrsta lagi: Er þá ekki einmitt bara best að fara í þessa þingsályktunartillögu hér, klára hana, ljúka henni og kjósa 29. ágúst um framhald viðræðna? Ef þjóðin segir já þá loksins getum við sest að samningaborðinu og fengið úr öllu þessu skorið. Ég veit að það sem vakir fyrir stjórnvöldum er að verja íslenska hagsmuni og það verður ekkert hvikað frá því. Ég hef séð hæstv. ráðherra vera mjög einhuga í því að markmiðið er að tryggja áfram íslenska hagsmuni. Er því ekki einmitt betra að við förum í þessa vegferð núna til að fá loksins þessi svör í staðinn fyrir að halda áfram þeim leik sem hefur verið í gangi síðasta áratuginn eða svo, þar sem við erum einhvern veginn að geta í eyðurnar, hvað ef og hvernig gæti þetta orðið o.s.frv.? Er ekki bara betra fyrir okkur öll að fá samninginn á borðið, átta okkur á veruleikanum og taka svo afstöðu um inngöngu eða ekki?