157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:48]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er alveg ljóst að sjávarútvegur er lykilsvið þegar kemur að þessum málaflokki og hv. þingmaður spyr hvort það sé ekki bara best að fara alla leið. Það er alveg ljóst í mínum huga að það er ekkert því til fyrirstöðu að þjóðin kjósi um hvort hún vilji aðildarviðræður eða ekki. Ég get sagt að það sem ég óttast er kannski það sama og við höfum séð í orkumálunum. Það sem við sáum í orkumálunum, og á kannski reyndar við um jarðakaupin sömuleiðis, er að við byrjuðum að innleiða hér löggjöf fyrir meira en áratug síðan sem allir töldu sig skilja hvað nákvæmlega þýddi fyrir íslenska hagsmuni, þ.e. að orkulöggjöfin myndi ekki hafa nein sérstök áhrif. Hvað hefur svo komið í ljós eftir því sem árin líða? Það hefur komið í ljós að þessi löggjöf hefur í raun og veru verið að grafa undan því góða kerfi sem við höfum byggt upp og einn af mínum uppáhaldsmönnum, Jóhannes Nordal, fjallar svo mikið um í sinni ævisögu. Ég held því að það sé sérstaklega mikilvægt að ríkisstjórnin setji fram — áður en farið er af stað í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu — hvaða samningsmarkmið snúa að auðlindinni. Ég held að það sé líka mikilvægt að við fáum svarið við því frá ríkisstjórninni með hvaða hætti hún telur raunhæft að fá fulla undanþágu því ég get ekki séð að það komi fram í þessari lýsingu. Það er mikilvægt að hafa það á hreinu.