þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar líka aðeins að koma inn á það að þetta eru auðvitað eðlisólík mál. Hv. þingmaður vék svolítið að fyrri afgreiðslunni frá 2009. Það var auðvitað allt önnur þingsályktunartillaga. Þetta er þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæði. Hitt var þingsályktunartillaga um það að hefja aðildarviðræður. Þetta er auðvitað tvennt ólíkt og auðvitað er þá eðli málsins allt annað. Þingleg meðferð er auðvitað sú sama, tillagan fer hérna í gegnum þingsal og svo inn í nefnd, en auðvitað er skjalið sem slíkt öðruvísi þar sem þetta snýst eingöngu um það að spyrja spurningarinnar: Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu, já eða nei? Þarna er því auðvitað grundvallarmunur á.
Mig langar að nýta síðara andsvar til að spyrja hv. þingmann hvort það væri þá ekki einfaldlega betra til að gæta okkar hagsmuna að eiga sæti við borðið þar sem ákvarðanirnar eru teknar, þar sem við eigum sæti við borðið í Evrópuþinginu, í framkvæmdastjórninni o.s.frv. þar sem við gætum gætt okkar hagsmuna og haldið þessum sjónarmiðum á lofti og okkar sérstöðu sömuleiðis, (Forseti hringir.) þannig að við sætum ekki frammi á gangi til þess að taka á móti reglugerðum og lögum sem við innleiðum (Forseti hringir.) heldur værum virkir þátttakendur í því að móta þessa löggjöf.