157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:51]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Mig langar til að nefna að auðvitað er það í mínum huga eðlilegt þegar ríkisstjórn sem er kosin til að leiða þjóð og er að leggja fram grundvallarbreytingu á utanríkisstefnu, að eitthvað dýpra en þingsályktunartillaga sé lagt fram, mér finnst eðlilegt að það sé sett fram þótt að ég skilji mætavel muninn sem hv. þingmaður dregur hér fram. Varðandi hagsmunagæsluna tók ég þátt í vinnu og fjölmörgum fundum á vegum Evrópusambandsins þegar ég starfaði við sendiráðið í Brussel. Ég sá hversu erfiðlega okkur gekk að manna ólíka fundi og hversu veik við vorum í sjálfu sér í að að sinna þeim samningi sem við þó höfum í dag. Ég get því alveg sagt að ég hafi ákveðnar áhyggjur af því að við myndum ná fram þeim áhrifum sem hæstv. ríkisstjórn setur fram. Ég hræðist ekki umræðuna (Forseti hringir.) og vonast til að hún verði tekin af fullum krafti en ég hef áhyggjur af þessu í samhengi við auðlindamál.