157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:53]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir prýðisgóða ræðu. Ég hjó sérstaklega eftir punkti sem hefur verið mér hugleikinn varðandi þá þjóðaratkvæðagreiðslu sem hér er gerð tillaga um, þ.e. varðandi markmiðin með þeim viðræðum. Í rauninni hefur ekki verið sett í nein efnisleg orð eða orð með efnislegu inntaki, ef ég mætti orða það sem svo, hvað þau markmið ættu að fela í sér, hvað ætti að vera í þágu þjóðar, hvar væru einhvers konar efnislegar, varanlegar undanþágur sem Ísland myndi vera sammála um að væru, eins og hv. þingmaður orðaði það svo ágætlega, einhvers konar rauð lína í þeim samningaviðræðum. Ég heyri hv. þingmenn stjórnarliðsins segja: Við ætlum núna að setjast að samningaborðinu. En þá verð ég, frú forseti, að fá að staldra við og fá að bera undir hv. þingmann að nú blasir við staða sem er sú að það er ekki eining um þessar viðræður. Þótt það sé eining um að þjóðin sé spurð er ekki eining um viðræðurnar eða inngöngu í ESB í ríkisstjórninni, svo þegar talað er um að setjast að samningaborðinu hljótum við að spyrja: Ja, það verður sest að samningaborðinu af hálfu ríkisstjórnarinnar, af hálfu embættismanna á vegum ríkisstjórnarinnar. Mig langar því að fá að spyrja hv. þingmann: Finnst henni í rauninni heiðarlegt gagnvart þjóðinni, lýðræðislegt og sanngjarnt, að spyrja þjóðina þessarar spurningar 29. ágúst þegar ekkert af þessum atriðum liggur fyrir?