157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:55]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hún tónar ágætlega við það sem ég kom inn á í ræðunni sem varðar það að ég tel að áður en þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram þurfi þessar rauðu línur að liggja fyrir og líka ákveðin greining á því hvers vegna það er talið að þær séu raunhæfar. Það er eðlilegt að slíkar upplýsingar séu settar fram svo að fólk geti rýnt þær, svo að þingið geti rýnt þær, því þetta eru stór mál og það er sanngjarnt að við séum ekki að tala um einhverjar stuttar útskýringar þegar kemur að svo stóru máli. Ég get líka sagt við hv. þingmann að ég geti skilið ákveðnar aðstæður sem kunna að koma upp. Segjum sem svo að þær atkvæðagreiðslur sem voru í norska þinginu um daginn hefðu farið á þann veg að Norðmenn, sem greiða 90% af kostnaði við að halda uppi EES-samstarfinu, væru á fullu að skoða Evrópusambandsaðild. Þá hefði ég skilið hraðann á málinu; að nú yrði Ísland kannski að skoða það sama af því að Norðmenn fjármagna svo stóran hluta af því að samningurinn okkar gangi. En þegar það er ekki meiri þörf á asa í málinu og ríkisstjórnin hefur talað um að það þurfi að leggja þetta fram fyrir lok árs 2027 hefði ég talið að dýpri vinna um markmið, með betri greiningum, væri eitthvað sem væri sanngjarnt að setja fram.