157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:57]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég heyri að við deilum ákveðnum áhyggjum af því að það eigi að spyrja þjóðina hvort það sé vilji til að setjast við samningaborðið þótt ekki liggi fyrir hverjar kröfur okkar eru við það samningaborð, sem vekur ákveðnar áhyggjur.

Mig langar í mínu seinna andsvari að spyrja hv. þingmann. Mér finnst, svona af þessum meiði líka, í þessu samhengi hlutanna, hafa farið lítið fyrir kostnaðinum við þessa vegferð. Það er svolítið látið að því liggja að við höfum engu að tapa en það er auðvitað kostnaður við að leggja út í þetta, bæði í beinhörðum peningum og kostnaður þess að alls konar ráðuneyti og alls konar aðilar víða í samfélaginu eyði kröftum sínum í þessa vegferð frekar en að gera eitthvað annað fyrir land og þjóð. Það var komið inn á það í dag að ríkisstjórnin í rauninni brýtur eigin reglur með því að fara ekki í hefðbundið samráð, t.d. að spyrja þau ráðuneyti hver kostnaðurinn myndi vera, hvað myndi þurfa að leggja til o.s.frv. Mig langar að fá að spyrja hv. þingmann: Telur hún að það væri þess virði að í þinglegri meðferð málsins yrði reynt að fara í þetta samstarf fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, (Forseti hringir.) svona ef hún sér ekki sóma sinn í því að gera það sjálf áður en málið kemur hér til síðari umræðu?