þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vona að ég hafi skilið spurninguna rétt. Varðandi þennan heildarkostnað, bæði í peningum og því hvernig forgangsröðun er get ég í grunninn sagt að það skiptir máli að hæstv. ríkisstjórn missi ekki sjónar af menntamálum, efnahagsmálum og heilbrigðismálum. Allt eru það mál sem við erum að brenna inni með á marga vegu og við megum ekki missa augun af þeim boltum. Ég er í prinsippinu ekki mótfallin því að við séum að ræða stórar pólitískar spurningar um framtíð Íslands í utanríkismálum. Það er mikilvægt að við gerum það reglulega og að við séum alltaf að meta hagsmuni Íslands, þannig að ég sé ekki eftir krónum í þá vegferð. En hún þarf að vera vönduð og hún þarf að vera byggð á gögnum og greiningum og ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að það ferli sem er nú fram undan fari á miklu meiri dýpt heldur en er hér í þessari ályktun.