157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:00]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir prýðilega og málefnalega ræðu þar sem m.a. var velt upp spurningum um hvaða öryggismála væri verið að vísa til og hvað kallaði á nánara samstarf við Evrópu í því ljósi. Ég held að engum blandist hugur um að það er algerlega breytt pólitískt landslag alþjóðlega. Í einu orðinu er hægt að segja að það sé ákveðin óvissa uppi sem hefur ekki verið, ekki bara varnarlega, þótt við tökum eftir því að mjög margir bandamenn okkar utan Evrópusambandsins, eins og Bretar, Kanadamenn og Noregur, hafa verið að gera sérstaka samninga við Evrópusambandið um aðkomu þar að því sem lýtur að framleiðslu vopna og annarra tengdra hluta, en líka ýmislegt annað til samræmingar sem Evrópusambandið stendur fyrir. Það er ekki síður efnahagsleg óvissa sem þarna er undir. Við tókum eftir því þegar Grænlandsmálið var í deiglunni, og Bandaríkjaforseti hótaði átta ríkjum sem sendu þangað hermenn refsitollum til að beita þá þrýstingi, þá var Evrópusambandinu að mæta þar sem í hlut áttu Evrópusambandsríki. Það eru viðsjárverðir tímar fyrir smáríki. Þessi óvissa og þetta tollastríð getur hæglega leitt til þess að einstök ríki, án þess að vera hluti af tollabandalagi, séu berskjölduð. Þess vegna hafa bæði Norðmenn og Bretar verið að ræða það hvort þau lönd geti orðið hluti af tollabandalagi Evrópusambandsins. Ég vek athygli á því að forseti Finnlands, Alexander Stubb, orðaði þetta þannig: Ef einhver hótar mér með tollum þá segi ég bara: Komdu bara, ég er í Evrópusambandinu og við munum svara sem ein heild.