157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:02]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð og sína spurningu. Það er alveg rétt að það er margt á hreyfingu í heiminum þessa dagana og slíkt kallar á að við séum vakandi og séum í stöðugu endurmati á okkar utanríkismálum og pössum upp á hagsmuni Íslands í hvívetna. Auðvitað eru Norðmenn nýbúnir að taka sína afstöðu til Evrópusambandsins. Ég geri í prinsippinu engar athugasemdir við það að Ísland eigi í öflugu efnahagslegu samstarfi við Evrópu og ég held að það sé mikilvægt. Ég held í sjálfu sér líka að það sé sjálfsagt að ræða við Evrópusambandið um samvinnu á sviði öryggismála í víðara samhengi. Með því að veðja kannski á einn hest held ég að við séum líka að missa dálítið möguleikann, ef við horfum aðeins lengra fram í tímann, á því að vera í öflugu samstarfi við Kína og Indland. Ég held líka að við séum dálítið fljót að útiloka Bandaríkin. Við munum ekki vita hver efnahagsleg og hernaðarleg stefna í Bandaríkjunum verður til langs tíma fyrr en eftir þar næstu kosningar. Ég man þegar ég bjó í Bandaríkjunum þegar Trump var síðast forseti að það breyttist margt á milli forseta. Við munum ekki sjá heildarmyndina alveg á næstu árum.

Í stuttu máli þá get ég tekið undir að það sé mikilvægt að við séum í samvinnu við ólíka aðila. Ég held að mikilvægt sé að við séum að efla tengslin við Evrópu jafnframt því að við séum að hugsa meira fram í tímann í samhengi við Asíu, séum að passa upp á verðmætt samband okkar við Bandaríkin og síðan dálítið að nýta okkur þá sérstöðu sem við höfum kannski sem felst í því að vera líka lítið ríki með þá möguleika að teygja okkur í ólíkari áttir en margir aðrir.