157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:04]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta svar en ég vil draga athygli að því að við erum stödd í storminum miðjum. Við þurfum einfaldlega að greina þetta býsna fljótt og vel. Mig langar til að hvetja þingmanninn, og raunar aðra þingmenn og áheyrendur sem eru að taka þátt í þessari umræðu, til að lesa grein Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem heitir „Efnahagslegar landvarnir“ og rekur nokkuð ítarlega hvernig þetta hefur teiknast upp á þessum alþjóðlega himni og að smáríki þurfi að huga vel að sínum hagsmunum. Eins og þar stendur, með leyfi forseta:

„Í þessum breytta heimi er óhugsandi að Ísland komist upp með að spila fríspil ef deilur harðna. Rétt eins og í varnarmálum þá getum við ekki stólað á að við séum svo smá og afskekkt að enginn nenni að skjóta á okkur í viðskiptastríði.“

Við þurfum að hugsa þetta eins og almannavarnir; við búum okkur ekki bara undir það sem er líklegast að gerist og einhvern tímann í framtíðinni (Forseti hringir.) heldur það sem er jafnvel ólíklegt að gerist en gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir okkur. (Forseti hringir.) Það heitir áhættustjórnun og þess vegna þurfum við að taka þessi öryggismál mjög mikið inn í myndina í allri þessari umræðu.