157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:07]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir yfirgripsmikla umræðu hér í dag. Það er auðvitað sjálfgefið, held ég, og allir átta sig á því að hér eru skiptar skoðanir en ég vil líka þakka ykkur sem eruð þarna úti sem hafa verið að senda mér mjög hvetjandi skilaboð. Þið eruð ekki öll viss en þið viljið fá að kjósa og ég vil þakka sérstaklega fyrir þau skilaboð að fá þetta tækifæri þó að við getum örugglega verið með mismunandi skoðun eins og er hér í þingsal. Mér þykir sérstaklega vænt um ein skilaboð sem ég var að fá í tengslum við málið:

„Takk fyrir að koma þessu máli í farveg.“ — Þetta er frá fyrrverandi verkalýðsforkólfi. — „Þetta er að mínu mati stærsta velferðarmál okkar Íslendinga og þess vegna það mikilvægasta.“

Þegar maður fær svona skilaboð og þegar maður fær skilaboð eins og ég fékk frá einni mömmu áðan sem hefur horft upp á einkadóttur sína vera að borga mjög mikið í húsnæðislán, vexti og fleira, alveg eins og hún upplifði sjálf, þá hugsar maður: Já, það er til mikils að vinna fyrir þjóðina okkar að hún fái þetta tækifæri. Við hér í meiri hlutanum treystum okkur til að taka stórar ákvarðanir, leyfa þjóðinni að fara að málinu, komast að málinu og segja einmitt já eða nei; já, ég vil vita meira eða nei, mig langar ekki að vita meira. Það er bara afstaða. Ég vil bara þakka fyrir því maður tekur sumt inn á sig eins og gengur í svona umræðu, sérstaklega þegar ákveðin ósvífni er í gangi, skrápurinn er orðinn ansi mikill. En svo les maður símann og fer inn í tölvupóstinn, skilaboðin og Messenger og hvar öll þessi skilaboð eru, Instagram og hvað það er, og þá bara kemur maður pínu brosandi hingað upp í þingstól af því að þetta er allt þess virði að tala um og berjast fyrir íslenskri þjóð. Þess vegna erum við að þessu; fyrir unga fólkið okkar, fyrir atvinnulífið okkar þannig að það geti verið samkeppnishæft til skemmri en líka lengri tíma. Við komum því líka í skjól, eins og var nefnt hér áðan, og vitnað m.a. í grein fyrrum varaformanns Sjálfstæðisflokksins um að við pössum upp á fyrirtækin okkar og sinnum okkar efnahagslegu vörnum líka, reynum að koma þeim í skjól alveg eins og við eigum að koma heimilunum í skjól.

Mig langar að ítreka aftur aðeins og staldra við hvað þessi tillaga felur raunverulega í sér. Hún er fremur einföld: Eigum við að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu eða ekki? Það má segja að sumir sem hafa talað hér haldi að þetta sé eitthvað óskýrt, flókið og jafnvel hættulegt. Mér finnst líka umhugsunarefni hvað er verið að reyna að ala á ótta, en það er gömul baráttuaðferð, eins og það sé ofsalega varhugavert að spyrja þjóðina í sjálfu sér. Það finnst mér ekki. Þessi tillaga felur fyrst og fremst í sér tækifæri fyrir þjóðina okkar til að segja sína skoðun og þar er ekkert að óttast. Við tökum bara eitt skref í einu og ég bara hvet þingmenn stjórnarandstöðunnar til að hætta að vera með þessa vanmáttarkennd eða minnimáttarkennd þegar kemur að því ef þjóðin segir já, hvernig samningsmarkmiðin og hvað við förum í — talandi um það, af því að það hefur verið deilt um það og sagt hér öllum stundum að það sé ekki um neitt að semja, búið að staðhæfa það fram og aftur. Mér finnst gott að þessi umræða hafi leitt til þess að jú víst, það er um eitthvað að semja. Stjórnarandstaðan er búin að tala um það og það er líka rétt, Evrópusambandið er ríkjabandalag sem byggir á sameiginlegum reglum. Það vita allir. En það þýðir ekki að öll aðildarferli séu eins eða það sé ekkert svigrúm til samninga um útfærslur eða aðlögun.

Stjórnarandstaðan er að vitna í Stefan Füle. Hann er hættur. Þau eru að vitna í einhvern bækling frá 2015, bara fyrirgefið, það eru 11 ár síðan ef fólk hefur ekki tekið eftir því og það er eitt og annað búið að breytast bara á umliðnum 15 mánuðum í heimsbúskapnum. Meira að segja fólk sem hefur reynslu af ráðherrastörfum talar hér eins og það sé bara ekkert, að við eigum bara að halda áfram eins og hestarnir sem eru með nokkurn veginn bundið fyrir augun og ekki hugsa neitt um það sem er að gerast þarna úti. Þess vegna vil ég, með leyfi forseta, vitna í það sem stækkunarstjórinn sagði:

„Forgangsmál Íslands eru vel þekkt […]. Samningar um aðild að Evrópusambandinu eru sértækir fyrir hvert og eitt ríki, og við tökum mið af þeim raunveruleika sem umsóknarríki búa við.“

Þetta er nákvæmlega það sem hefur verið sagt og skýrara verður það varla. Og af hverju vilja menn þá ekki láta á það reyna? Hvers konar hugleysi er það? Hér hrista menn hausinn yfir því og ég segi bara enn og aftur: Blessunarlega voru þessi viðhorf ekki uppi 1949 þegar þurfti einmitt að berjast gegn þeim röddum sem sögðu: Það er verið að ógna fullveldinu með því að ganga í NATO. Það voru ekki þeir stjórnmálamenn sem réðu þá og voru í meiri hluta sem voru hræddir við að taka ákvarðanir. Þess vegna skiptir máli að þora að taka ákvarðanir þegar aðstæður hafa breyst, þegar við sjáum að staða Íslands er einmitt til þess að ná sterkum og góðum samningi er betri sem aldrei fyrr.

Svo koma menn og vitna í þennan bækling frá 2015 og segja: Þetta eru aðlögunarviðræður. Mér er eiginlega nákvæmlega sama hvað þið nefnið þessar viðræður, aðlögunarviðræður eða eitthvað. Vel að merkja, til að mynda þegar Króatía fór inn þurfti hún að aðlaga sig meira heldur en við höfum nokkurn tímann þurft að gera því við erum í EES. Við erum 80% þegar inni. Það var ekki um Króatíu á sínum tíma. En ef þið viljið kalla þetta aðlögunarviðræður þá bara gerið þið það. Það sem skiptir mestu máli er að sé í þágu íslenskra hagsmuna. Ef samningsniðurstaðan verður þannig að hún verði í þágu íslenskra hagsmuna, að við pössum upp á auðlindir landsins, pössum upp á sjávarútveginn, pössum upp á velferðarkerfið, pössum upp á landbúnaðinn, pössum upp á samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs, þá segi ég já. En ef það verður ekki passað upp á þessa þætti þá er alveg ljóst að mitt svar er nei, ef samningur er ekki í þágu íslenskra hagsmuna. Til þess er leikurinn gerður; að passa upp á íslenska hagsmuni og að við lendum ekki bara einhvers staðar mitt á milli af því að við þorum ekki að taka ákvörðun, alla vega hluti þingsins þorir ekki að taka ein eða nein skref.

Og eitt útilokar ekki annað. Að vera aðili að Evrópusambandinu útilokar ekki samskipti við önnur ríki, bara síður en svo. Evrópusambandið, sem einstök aðildarríki, er einmitt að ná betri samningum við Kína, við Indland, við önnur Asíuríki og styrkja sambandið við Bandaríkin. Bandaríkin hafa einmitt sagt að Evrópa verði að standa þétt saman og gera meira.

Ég er sammála því sem hefur verið bent á hér, m.a. af hv. þm. Degi B. Eggertssyni og fleirum í gegnum tíðina, að það eru varhugaverðir tímar þegar við erum að sjá heiminn þróast í þá veru að það er að myndast þessi stórveldapólitík, stórveldaráðsræði. Hvar ætlum við Íslendingar þá að vera? Hvað eru Evrópusambandsríkin einmitt að gera til þess að vera ekki undir, að þau verði ekki 27 í sitthvoru lagi, hafi ekkert að segja? En saman eru þau svo miklu sterkari, að standa vörð um frelsi og frjálsan markað og viðskipti fyrir fyrirtæki sín, fyrir atvinnulíf, fyrir fólkið sem býr á þessu svæði. Þau eru sterkari saman. Þau vita alveg að Evrópusambandið er ekkert fullkomið. Íbúarnir vita það líka. Vel að merkja, ánægja með Evrópusambandið hjá ríkjum Evrópusambandsins hefur bara farið vaxandi. Af því að við viljum alltaf líkja okkur við Norðurlöndin, skoðið þá Finnland, Svíþjóð og Danmörku þar sem ánægjan með Evrópusambandið hefur bara farið vaxandi. Danir hefðu aldrei viljað vera án Evrópusambandsins í Grænlandsmálinu af því að þar töluðu ríki skýrt eins og Ísland, þó að það hafi verið einhverjir sem hefðu viljað tala öðruvísi.

Þetta snýst líka um það að þegar heimurinn er að þróast í að við erum að sjá stórveldin fara áfram án þess að lúta alþjóðalögum, vopnvæða viðskiptin án þess að lúta alþjóðalögum, fara í alls konar tilfæringar hvar sem þau eru, ferlegasta dæmið er Rússland, þá hljótum við Íslendingar að spyrja: Hvernig pössum við best upp á almenning í landinu, fjölskyldurnar í landinu og atvinnulífið, ekki síst litlu og meðalstóru fyrirtækin og nýsköpunarfyrirtækin? Þess vegna segi ég: Við erum sterkari saman með öðrum heldur en bara ein og sér. Þetta er mín skoðun og hún hefur ekki mikið breyst í áranna rás.

Það sem mér hefur þótt áhugavert líka er að stjórnarandstöðuflokkarnir hafa ekki getað sagt hér skýrt og ekki heldur áðan í Silfrinu, hafa beinlínis komið sér undan því, þegar þessi þjóðaratkvæðagreiðsla verður 29. ágúst, ef það kemur ákveðin niðurstaða — af því að ég er búin að segja að við í Viðreisn, ef það kemur nei, þá virðum við þá niðurstöðu og við höldum áfram, vinnum út frá henni, höldum áfram að styrkja EES-samninginn og standa vörð um hann. Við þurfum greinilega að laða stjórnarandstöðuna aðeins með okkur í það af því að hún hefur ekki alveg verið að tala einum rómi hvað það varðar. En ef niðurstaðan er já þá hafa allir ríkisstjórnarflokkarnir sagt: Við munum virða niðurstöðuna. (Forseti hringir.) Þessa niðurstöðu, þetta svar hefur enginn úr stjórnarandstöðunni þorað að segja af því það er alltaf þetta sama: (Forseti hringir.) Það er aldrei rétti tíminn, hvað þá rétta spurningin. Mér finnst stjórnarandstaðan eftir þennan dag skulda þjóðinni heiðarlegt svar við því: (Forseti hringir.) Ætlar hún að virða niðurstöðu þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu?