þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra kallar eftir heiðarleika. Ég held að við ættum að byrja heima hjá okkur, ef ég væri hæstv. ráðherra. Það að við tökum upp 80% af regluverki Evrópusambandsins eru hrein og klár ósannindi. Við tökum upp 13–15% á ári. Hæstv. utanríkisráðherra talar hér eins og það sé bara eitthvert samningsmál að sækja um aðild og það sé bara einhver tónn og breyttur veruleiki sem geri það að verkum að þetta er allt öðruvísi en nokkurn tímann áður. Að vísu segir hæstv. ráðherra: Jú, jú, auðvitað er þetta byggt á samningum og reglum. Hvaða reglur hafa breyst að undanförnu? Það hafa ekki verið neinar ríkjaráðstefnur þar sem samþykktum var breytt sem náttúrlega þarf að gera til að breyta reglunum sem Evrópusambandið starfar eftir. Hvaða reglur hafa breyst? Hvað hefur gerst, (Forseti hringir.) hvaða ríkjaráðstefna hefur verið sem gerir það að verkum að hæstv. ráðherra getur talað hér eins og það sé bara ekkert mál fyrir hana að mæta á vettvang og semja um allt milli himins og jarðar? (Forseti hringir.) Hvenær urðu þessar breytingar?