þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það hefur bara mjög margt breyst á umliðnum árum. (GÞÞ: Hvaða ríkjaráðstefna …?) Það sem mér finnst skipta máli er að taka mark á yfirlýsingum. Ég vil taka mark á núverandi stækkunarstjóra en hv. þingmaður er alltaf að vitna í gamla stækkunarstjórann og gömlu reglurnar. Það er sagt alveg skýrt. Forgangsmál Íslands eru vel þekkt. Samningar um aðild að Evrópusambandinu eru sértækir fyrir hvert og eitt ríki og tekið er mið af þeim raunveruleika sem umsóknarríki búa við. Það hefur ekkert ríki sótt um aðild að Evrópusambandinu sem er eins og Ísland sem til að mynda hefur meginþorra sinna tekna af undirstöðuatvinnugrein sem er sjávarútvegur. Munum við ekki leggja ofurkapp á það? Og talandi um þessa talnaleiki sem hv. þingmaður hefur verið með í langan tíma: Af hverju eru þessar tölur svona? Af því að við erum ekki aðilar að sjávarútvegsstefnunni, við erum ekki aðilar að landbúnaðarstefnunni og að hluta til ekki heilbrigðisstefnunni heldur, eins og við fundum reyndar vel fyrir í Covid, en vegna samstöðu norrænu þjóðanna þá komumst við undir regnhlíf Evrópusambandsins. Það sem við erum aðilar að, (Forseti hringir.) það sem við tökum inn frá Evrópusambandinu, eru 80%, það er bara þannig.