157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:21]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við erum að upplifa það að hæstv. ráðherra kallar eftir heiðarleika en er að skrökva hér að þingi og þjóð. Við erum ekki að taka nein 80% upp. Það eru engar tölur sem bakka það upp, engar. Hæstv. ráðherra getur ekki sagt okkur hvar í regluverkinu þetta er, að við getum fengið varanlegar undanþágur. Það dugar ekki að vísa í einhver ummæli hér og þar. Það eru reglur í Evrópusambandinu, það er Evrópudómstóll. Sérlausnirnar hafa falist í því, eins og með norræna landbúnaðinn, að Evrópusambandið samþykkir það að breyta sameiginlegu stefnunni og hæstv. ráðherra kemst ekki undan því að við verðum í sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Úr því að við vitnum í ný viðtöl þá er hægt að vitna í það að núverandi stækkunarstjóri sagði í viðtölum við norska fjölmiðla að það væru engar varanlegar undanþágur og reyndar var sá sem var í viðtali núna í síðustu viku að segja okkur frá því (Forseti hringir.) í íslenska Ríkisútvarpinu að við fengjum ekki að veiða hval. Nú geta menn haft allar skoðanir á hvalveiðum en staðreyndin er þessi: Evrópusambandið mun ráða því hvort við veiðum íslenskan hval, ekki Ísland, ef við göngum inn. Hæstv. ráðherra getur reynt að halda áfram þessum blekkingarleik, hann getur reynt það. Hann getur hlaupið en hæstv. ráðherra getur ekki falið sig því að þetta eru staðreyndir.