157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:23]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Nei, þetta eru ekki staðreyndir. Þetta eru staðhæfingar, það er mikill munur þar á. Varðandi hvalveiðar þá vita allir mína skoðun, ég held að við eigum að hætta þeim en það breytir ekki því að þetta er mál sem Ísland mun ákveða sjálft. Ég hef meiri áhyggjur reyndar af kröfunni vestan hafs. Hv. þingmaður má vita það að það eru ákveðnar skoðanir þar varðandi hvalveiðar en það er alveg skýrt, það erum við sem ákveðum framhald þess máls.

Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr þá erum við að innleiða þrjá fjórðu eða hátt í 80% af gerðum frá Evrópusambandinu. [Framíköll í þingsal.] Það er bara þannig. (Forseti hringir.)

(Forseti (ÞSv): Gefa ræðumanni hljóð.)

Af hverju náðum við strax frekar auðveldum köflum, ellefu köflum á sínum tíma, og af hverju er alveg ljóst að við munum mjög auðveldlega ná öðrum köflum inn? Af því að við erum þegar inni á ákveðnum stöðum. Við uppfyllum þegar öll þessi ákvæði sem er verið að taka tillit til. Við erum í annarri stöðu en til að mynda önnur umsóknarríki. Ég held að fólk verði aðeins að fara að vakna og draga upp rúllugardínurnar. (Gripið fram í.)