157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:24]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir ræðuna, hennar seinni ræðu í dag og mjög góða ræðu. En mig langar kannski að beina athyglinni að því að þó svo að við séum hér að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslu, þingsályktunartillögu um að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu, þá hefur umræðan snúist mikið um það hvað kemur næst. Við erum kannski farin að hlaupa svolítið hratt í átt að því sem er fram undan. Eins og hæstv. ráðherra veit þá eru varnar- og öryggismál mér hugleikin. Ég hef verið að velta dálítið fyrir mér grein hv. þm. Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur frá því um daginn um efnahagslegar varnir og langaði aðeins að fá sýn hæstv. ráðherra á mikilvægi þess að vera innan tollabandalagsins en ekki utan þess þegar kemur einmitt að þeim veruleika sem við búum við í dag. Ég nefni nýlegan hæstaréttardóm í Bandaríkjunum, tollana sem eru að koma þar; hvaða máli það skiptir í þessu tollastríði að vera innan bandalagsins en ekki fyrir utan það.