þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessar vangaveltur. Samtök iðnaðarins í Noregi hafa m.a. hvatt norsk stjórnvöld til að skoða hvort hægt sé að vera aðili að tollabandalaginu. Svo að ég vitni í ræðu kollega míns í Noregi, Espens Barths Eides, sem hélt ræðu um utanríkismál nýlega, þá dró hann fram — ekki út af því að ESB væri að hverfa frá EES-samningnum, alls ekki þannig, heldur er ESB að þétta raðirnar enn frekar í ljósi þessa tollastríðs sem hófst með ákvörðun Bandaríkjaforseta um að demba alls konar tollum á allt og alla. Evrópusambandið er að hugsa sinn gang, hvernig það ver hagsmuni sinna fyrirtækja, passar upp á að sín fyrirtæki hafi aðgang að frjálsum viðskiptum og mörkuðum. Ég deili því að mörgu leyti þessum áhyggjum sem Samtök iðnaðarins í Noregi hafa varðandi norskan iðnað og hér auðvitað íslenskan iðnað. Við sáum það að hluta til á verndarráðstöfununum að það er við ramman reip að draga þegar hægt er að fella eitthvað undir tollabandalagið en ekki undir innri markaðinn.