157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:27]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Við deilum greinilega þessari sýn þegar kemur að efnahagslegum vörnum, hvað þetta skiptir miklu máli. Þetta er auðvitað eitt af því sem yrði þá grundvöllurinn að stórum hluta þess sem við værum að semja um eða laga okkur að enda er þetta stórt mál. Í seinna andsvari mínu langar mig að vera á svipuðum nótum og ég var við hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson hér fyrr í kvöld þar sem við vorum aðeins að ræða innri öryggismál Evrópusambandsins en þar er löggæslusamstarfið gríðarlega mikið. Við erum þátttakendur í því að hluta í gegnum Schengen-samstarfið en mig langar aðeins að fá að heyra sýn ráðherrans á það hvort það skipti einhverju máli að við komumst eitthvað dýpra inn í það samstarf eða hvort það sé bara nóg að vera í þessu Schengen-samstarfi varðandi það.