þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Schengen-samstarfið er okkur Íslendingum auðvitað gríðarlega mikilvægt. Og hvað er Schengen-samstarfið varðandi löggæsluna? Það veit hv. þingmaður miklu betur en ég. Hvernig er aðstaðan þar? Þar erum við með sæti við borðið. Við erum með sæti við borðið þegar kemur að Schengen-samstarfinu, af því að við erum fullir þátttakendur þar. Þar er einmitt verið að hlusta á þau viðfangsefni og það sem við eigum við að etja hér og við erum líka að læra af öðrum. Við erum af fullum krafti að taka þátt í samstarfinu og það skiptir mjög miklu máli.
Ég vil líka geta þess að Evrópusambandið, bara vítt og breitt, bæði í vörnum og öryggismálum, bæði í hefðbundnum hernaði en ekki síst í fjölþáttaógnum, er að sækja mjög fram. Það er í raun þannig að NATO er svolítið að ýta þeim parti, varðandi fjölþáttaógnirnar og varnir því tengdar, til Evrópusambandsins. Það er m.a. hluti af því sem fer undir SAFE sem er 800 milljarða evra verkefni fram til 2035, að mig minnir. Hluti af því eru einmitt þessar varnir og öryggismál sem við erum að hugsa um og það tengist óbeint Schengen-samstarfinu. (Forseti hringir.) Já, sæti við borðið þegar kemur að Schengen skiptir okkur máli og við þurfum að nýta okkur það enn frekar af því að á þessum tímum er slíkur aðgangur mjög dýrmætur.