157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:32]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Nú veit ég ekki hvort hæstv. ráðherra hafi verið að ímynda sér það sem ég hafði verið að hugsa, en alla vega sagði ég ekki það sem hæstv. ráðherra var að reyna að svara mér hérna rétt áðan og sneri að því að ég væri með einhverjar getgátur. Ég var einfaldlega með beina spurningu til hæstv. ráðherra sem sneri að þeim auðlindum sem okkur eru mikilvægar, þar á meðal sjávarauðlindinni. Síðan eru orkuauðlindir náttúrlega okkar fjöregg til framtíðar og það eru risamál fyrir íslenska þjóð og við þurfum að hafa það á hreinu þegar við erum að leggja af stað í vegferð að sett sé inn í þessa þingsályktunartillögu sem við ræðum hér að það sé skilyrði, íslensk þjóð þarf að fá að vita að það sé eitt af samningsmarkmiðum okkar að það sé skilyrði að við séum með varanlegar heimildir til að nýta okkar auðlindir. Það er fyrst og fremst það sem við þurfum að kalla eftir og það þarf að koma fram, hæstv. ráðherra. Það þarf að vera skýrt. (Forseti hringir.) Það er ekki skýrt í þeirri tillögu sem við erum að fjalla um hér. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er fyrri umræða um þingsályktunartillögu. En það þarf að vera skýrt hvað þetta varðar.