þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Þetta er alveg skýrt. Við drögum fram auðlindir í þingsályktunartillögunni af því að við ætlum að standa vörð um okkar auðlindir. Það er alveg skýrt. Við skulum líka hafa það í huga að í raun, þegar upp er staðið, þá eru þetta þjóðréttarsamningar ef við náum svo langt, ef þjóðin segir já og við náum síðan samningum við Evrópusambandið. Ég vil líka geta þess að þegar Bretar gengu út þá voru ekki síst Skotar — þeir voru undir pilsfaldi Breta og aumingja Skotarnir þurftu að fara út úr Evrópusambandinu, þeir voru á móti því en þurftu að fylgja Englendingum. Þeir eru með miklar olíuauðlindir undan ströndum Skotlands. Fóru þær til ESB? Var það ESB sem réði yfir þeim og svo þegar þeir fóru út, var ESB eitthvað með puttana í því? Nei. Þetta eru allt saman einhverjar getgátur og rangfærslur í versta falli. Þannig að já, það er alveg skýrt. Þessi ríkisstjórn mun standa vörð um hagsmuni Íslands. Hvað þýðir það þegar kemur að auðlindunum? Að sjálfsögðu munum við passa upp á þær.