þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Nú er áliðið og vel við hæfi að þessum þingfundi ljúki á hálfgerðum miðilsfundi. Hæstv. utanríkisráðherra var hér með skyggnilýsingar og sá mann úr símtæki sínu úr verkalýðshreyfingunni sem lýsti yfir miklum stuðningi við hana. Það er ágætt að hún finni einhverja fró í mönnum úti í bæ. En ég hlýt að spyrja: Saknar hún þess ekki að hér sitji ekki aðrir hæstv. ráðherrar í dag og taki þátt í þessari umræðu með henni? Finnst hæstv. utanríkisráðherra hún ekki standa svolítið ein í þessum þingsal með þetta mál? Hér ber það uppi ein. Hér hafa örfáir þingmenn stjórnarflokkanna vissulega tekið til máls, flutt eina eða tvær ræður og nokkrir tekið þátt í andsvörum, en hæstv. utanríkisráðherra er hér ein með þetta mál. Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Hvernig líður hæstv. utanríkisráðherra með það að standa ein í þessu máli? Hefði ekki verið meiri bragur af því þótt það væru ekki nema formenn samstarfsflokkanna sem tækju þátt hér í þessari umræðu?