157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:36]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Svo að ég svari strax að þá líður mér bara ljómandi vel. Mér líður bara ljómandi vel þegar maður finnur að maður er að gera gagn, maður er að vinna fyrir þjóðina, að taka ákvarðanir sem þarf pínulítinn kjark til og það er samstaða í ríkisstjórn. Ég greini það og ég finn það að það er eitthvað sem truflar stjórnarandstöðuna. Auðvitað er það þannig, sérstaklega hjá þeim sem hafa áður verið í Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum og þriðja flokknum sem er ekki lengur á þingi, þar var náttúrlega ekki samstaða í sjö ár. Þetta er svolítið óvenjulegt að það skuli vera samhent ríkisstjórn. Forsætisráðherra var hér fyrr í dag. Mennta- og barnamálaráðherra er að sinna erindum í útlöndum fyrir sinn málaflokk. Við erum öll að sinna okkar verkefnum. Ég er bara ánægð með það hvernig bæði samhentir þingflokkar stjórnarflokkanna eru hér að taka þátt í umræðunni. Það er aldeilis ekki þannig að við stöndum hér ein og eins og ég segi enn og aftur: Takk fyrir öll skilaboðin sem þið senduð. Það fer kannski eitthvað í taugarnar á fólki hér en það skiptir mig máli að finna að það sé verið að hlusta á það sem við erum að segja.