157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:38]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það lítur ekki út fyrir að vera nokkur samstaða með ríkisstjórnarflokkunum í þessu máli. Hér láta þeir ekki sjá sig. Þessu máli hefur hæstv. utanríkisráðherra lýst sem innanríkismáli en hún ber það hér ein í þingsal og aðrir ráðherrar láta ekki sjá sig. Hæstv. forsætisráðherra sat hér og hefði ekki sagt orð nema af því að til hennar var beint spurningum í óundirbúnum fyrirspurnum. Mig langar þá að spyrja um hagsmunabaráttuna og hagsmunagæslu hæstv. utanríkisráðherra sem hún segir að sé einboðin og í sjávarútvegsmálum sérstaklega. Af hverju var þá ekki bara tilgreint í þessari þingsályktunartillögu að samningsmarkmiðin væru þau að Ísland vildi fara í aðildarviðræður án þess að opna kaflann um sjávarútvegsmál? Að samningsmarkmiðið væri að Ísland myndi standa utan við sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB? Ég spyr hæstv. utanríkisráðherra: Er það ekki grundvallarmarkmiðið? Er það ekki forsenda fyrir aðild að Evrópusambandinu að Ísland standi utan við sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB? Er það ekki alveg skýrt að hæstv. ráðherra ætlar að bera það á borð við ESB þegar þar að kemur?