þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að þessi ríkisstjórn mun ekki skrifa undir samning sem felur ekki í sér full yfirráð Íslands yfir auðlindum, þannig að það sé alveg skýrt. Mér finnst hins vegar umhugsunarefni að hér koma stjórnarandstöðuflokkar og allt í einu byrja að tala um að þeim sé annt um sjávarútvegsstefnu og hafa allt á hornum sér. Þetta eru sömu þrír flokkarnir sem settu Íslandsmet í málþófi á síðasta ári í máli sem snerist um hvað? Sem snerist um það að þjóðin fengi réttmæta hlutdeild í einkaaðgangi útgerðarinnar að sjávarauðlindinni, að þjóðin fengi réttmæta auðlind sína í sameiginlegri auðlind. Við vorum nefnilega að gæta hagsmuna þjóðarinnar. Svo koma hér þessir stjórnarandstöðuflokkar og segja: Nú getum við. Þið gátuð það ekki síðastliðið sumar, þið lýstuð því með lengsta málþófi sögunnar að þið vilduð ekki að þjóðin fengi réttmæta hlutdeild (Gripið fram í.) og svo ætlið þið að reyna að halda þessu áfram, (Forseti hringir.) að reyna að standa fyrir þjóðinni. [Framíköll í þingsal.]
(GÞÞ: Svaraðu spurningunni. )Ég er búin að svara spurningunni. (GÞÞ: Nei. )(Forseti hringir.) Ég svaraði henni strax í byrjun. (GÞÞ: Nei. ) [Háreysti í þingsal.] Hættu bara í símanum, hv. þingmaður.
(Forseti (ÞSv): Gefa ræðumanni hljóð.)
(Forseti hringir.) Þessi ríkisstjórn mun ekki skrifa undir samning sem felur í sér (Forseti hringir.) að við verjum ekki fiskveiðiauðlindir þjóðarinnar. (Forseti hringir.) Við verjum hagsmuni íslensku þjóðarinnar. (GÞÞ: Sameiginlega sjávarútvegsstefnan. )Við höfum sýnt það og munum sýna það aftur, annað en þið. (GÞÞ: Sameiginlega sjávarútvegsstefnan. )
(Forseti (ÞSv): Forseti biður þingmenn að róa sig og gefa hljóð í salnum svo að mál ræðumanns heyrist.)