Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 742, um bílastæðagjöld á ferðamannastöðum, frá Sigmundi Erni Rúnarssyni. Einnig hafa borist bréf frá félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 721, um örorkubætur til erlendra ríkisborgara, á þskj. 722, um ellilífeyri til erlendra ríkisborgara, og á þskj. 723, um barnalífeyri til erlendra ríkisborgara, allar frá Diljá Mist Einarsdóttur.