Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nú þegar umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild eru komnar á fulla ferð og málið hefur verið sett á dagskrá er fulltrúum meiri hlutans tíðrætt um hve stórkostlegt það sé að bjóða til slíkrar lýðræðisveislu, eins og atkvæðagreiðslan er kölluð, og það þótt það hafi hvergi komið fram í aðdraganda síðustu alþingiskosninga að stefnt yrði að þjóðaratkvæðagreiðslu um einstök mál. Og nú er þingsályktunartillögu um ESB-aðild dembt inn í þingið tveimur mánuðum fyrir sveitarstjórnarkosningar. Að mínu mati er þessi tímasetning alger vanvirðing við sveitarstjórnarstigið. Það hefur verið venjan að Alþingi taki tillit til sveitarstjórnarkosninga og gefi samfélaginu svigrúm til að ræða nærþjónustu og málefni sveitarfélaganna.
Forsætisráðherra lýsti því sjálfur yfir fyrir síðustu kosningar að mörg önnur mál væru brýnni í samfélaginu en ESB-aðildarumsókn og að það mál myndi bara kljúfa þjóðina. En það er nákvæmlega það sem nú er að gerast í boði ráðherra ríkisstjórnarinnar. Næstu vikurnar mun þjóðfélagsumræðan snúast um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu, hvað hún þýðir og hvaða kostir og gallar felast í ESB-aðild. Það er kýrskýrt að verði samþykkt að halda aðildarviðræðum áfram er verið að stíga mjög stórt skref inn í aðlögunarferli og inngöngu í ESB. Í stað þess að leyfa aðdraganda sannrar lýðræðisveislu, sem sveitarstjórnarkosningar eru, þær snúast um innanlandsmálefni, þá verður tekist á um ESB. Í stað þess að ræða málefni og framtíð íbúa og fyrirtækja í landinu býður ríkisstjórnin upp í Evrópudans, dans sem íbúar í landinu voru alls ekki að óska eftir og áttu ekki von á á þessum tímapunkti. Ég endurtek: Hér er um algjöra vanvirðingu við sveitarstjórnarstigið að ræða, íbúa og kjörna fulltrúa um land allt.