157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:48]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra segist treysta þjóðinni, að hæstv. ráðherra vilji ná góðum samningum við Evrópusambandið þar sem Íslendingar munu halda algjörum yfirráðum yfir auðlindum okkar sem Evrópusambandið girnist. Það sem hæstv. utanríkisráðherra segir hins vegar ekki er það að ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur frá yfirstjórn ESB, ekkert. Um hvað hefði verið að semja þegar hver ráðamaður á fætur öðrum í ESB segir að engar varanlegar undanþágur séu í boði? Auðvitað er smuga að semja um aðlögunartíma að regluverki sambandsins en þær sérlausnir er hægt að afturkalla með einu pennastriki. Því fengu Írar harkalega að kynnast þegar fiskveiðikvóti þeirra var skorinn hressilega niður vegna þess að Frakkar, Pólverjar, Hollendingar og Þjóðverjar, stóru þjóðirnar í ESB, komu í veg fyrir að sérlausn Íra héldi. Vilja menn reyna að semja um tímabundnar sérlausnir um auðlindir okkar og stefna þessum fjöreggjum þjóðar okkar í stórhættu? Það er ekki tilviljun að ESB vill fá Ísland inn enda erum við ein ríkasta þjóð Evrópu og myndum alltaf fórna meiri hagsmunum fyrir minni sem og hluta fullveldis og sjálfstæðis við inngöngu. Mikill meiri hluti landsmanna er andvígur lögfestingu bókunar 35 og var hæstv. utanríkisráðherra spurður hvort þessi eindregni vilji þjóðarinnar ætti að hafa einhver áhrif. Á þjóðin að fá að koma að því máli? Svar hæstv. ráðherra er nei, málið er of stórt. Ráðherra treystir ekki þjóðinni. Það væri engin þjóðaratkvæðagreiðsla ef það væri þingmeirihluti fyrir þessu máli. Það væri kosið hér og gólað: Kjósum um málið. Verið er einfaldlega að misnota almennt jákvætt viðhorf til þjóðaratkvæðagreiðslna í pólitískum tilgangi og það er vont.