157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:50]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Í þessari viku mun ég leggja fram þingsályktunartillögu um að þjóðgarður verði til á utanverðu Langanesi. Þetta er ein af tillögum starfshóps sem ég leiddi á síðasta kjörtímabili sem snýr að slíkri vinnu ásamt fleiri tillögum sem voru í þeirri skýrslu.

Það er margt fallegt að skoða á Langanesi. Það er áhugaverður staður. Það eru náttúruminjar og það eru söguminjar, merkilegt að koma. Mig grunar að allt of fáir Íslendingar hafi komið út að Fonti á Langanesi og kynnst því. Nú er verið að klára Brekknaheiðina og þá verður klár þessi ytri hringur á Norðausturlandi. Ferðamannastraumurinn um þennan nýja veg er þegar byrjaður að aukast nú þegar komið er bundið slitlag á ytri hringinn. Brekknaheiði klárast eftir eitt eða tvö ár. Sú framkvæmd er að fara af stað. Ég held að það væri áhugavert að klára þetta mál, þetta yrði þá líka eins konar ferðamannasegull fyrir norðausturhornið sem drægi til sín og dreifði ferðamönnum betur. Hér er hugmyndin þá svipuð og með Snæfellsjökulsþjóðgarðinn, að koma upp þjóðgarði á norðaustanverðu Langanesi.

Það er gríðarlega mikilvægt að heimamenn séu hér hafðir með í ráðum og það er hugsað þannig að þetta sé svipað og í Snæfellsbæ þar sem heimamenn skipa raunverulega meiri hluta stjórnar og þetta sé allt gert og unnið á forsendum samfélagsins á svæðinu og þetta verði ekki hugsað sem eitthvert Reykjavíkurdæmi, að stýra þjóðgarði á norðausturhorni landsins. Ég vildi bara vekja athygli á þessu hér í störfum þingsins og vona að málið fái góðan framgang hér í þinginu. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.