157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

Störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Já, það er meira að gerast í landinu en ESB-umræða. Í þrjú ár hefur verið í undirbúningi að stækka verknámsaðstöðu við Menntaskólann á Ísafirði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Verkmenntaskólann á Akureyri — í þrjú ár, en það er fátt að frétta. Nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri sitja kennslustundir í gluggalausum kjallara og aðrir úti á bílastæði vegna plássleysis. Mörg hundruð nemendum hefur verið vísað frá, nú síðast á síðasta ári. Á Sauðárkróki er aðstaðan löngu sprungin. Á Ísafirði bíða menn eftir framkvæmdum. Sama má segja um Fjölbrautaskóla Suðurnesja, en þar hefur verið kennt bóknám í íþróttahúsinu, í gámaeiningum og kennarastofan þar er löngu sprungin. Íbúafjöldi á því svæði hefur tvöfaldast á undanförnum 20 árum og nú hillir undir að atvinnuleysi fari að ná 10% á Suðurnesjum og þá auðvitað leitar fólk í nám. Nýjustu tillögur ráðuneytisins gera ráð fyrir því að viðbyggingin þar muni uppfylla svona sirka helming af þörf Fjölbrautaskóla Suðurnesja. En látum það liggja á milli hluta.

Hvað er að gerast í málinu? Er enginn á vaktinni varðandi þetta mál? Skólameistararnir upplifa úrræðaleysi, seinagang og fá misvísandi upplýsingar. Verkefnastjórinn sem átti að sjá um málið virðist vera hættur, virðulegi forseti. Hugmyndir hafa komið fram núna síðast um að sveitarfélögin sjálf fjármagni byggingarnar, sveitarfélögin sjálf, og samt eiga peningarnir að vera til. Þeir voru reyndar færðir til út af seinagangi og það er auðvitað skiljanlegt í framkvæmd. En staða ríkisfjármála er ekki þannig að fjármögnuð verkefni fái ekki framgang. Ég skil ekki hverju sætir, virðulegi forseti. Ég kalla eftir aðstoð þingsins við að ýta á eftir þessu mikilvæga máli. Hér inni hljóta allir að vera sammála um það að þetta hljóti að eiga að vera í forgangi. Nemendur okkar í landinu eiga betra skilið en þennan seinagang.