157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

Störf þingsins.

[14:02]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Frú forseti. Efnahagsmál eru forgangsmál ríkisstjórnarinnar. Á fundi þjóðhagsráðs í síðustu viku voru áhugaverðar hagtölur lagðar fram til umræðu. Þar kom einmitt fram að það er bara nokkuð bjart yfir íslensku efnahagslífi þrátt fyrir barlóminn sem er hér stundum hjá stjórnarandstöðunni. Hagvöxtur er hægur en upp á við. Sterk staða heimilanna styður áfram við einkaneyslu og útlit er fyrir áframhaldandi bata í helstu útflutningsgreinum, m.a. sjávarútvegi, áliðnaði, fiskeldi og tölvutengdri þjónustu. Drifkraftar hagvaxtar síðustu 15 ára hafa veikst. Hægst hefur á vexti ferðaþjónustu og aðflutningur vinnuafls hefur dregist saman. Hagvöxtur á mann frá árinu 2018 var enginn. Hagvöxtur síðustu ára var drifinn áfram að mestu af fólksfjölgun með tilheyrandi álagi á húsnæðismarkað, heilbrigðiskerfi, samgöngur, löggæslu, menntakerfi og allt hitt. Nú erum við að breyta um takt. Já, það er erfitt og það tekur á en nú erum við að undirbyggja raunverulegan hagvöxt til að standa undir aukinni velferð, hagvöxt sem byggir á aukinni framleiðni, tækniframförum, nýsköpun, nægu orkuframboði og sterkri samkeppnishæfni atvinnulífsins.

Virðulegi forseti. Þú gerir ekki rassgat einn, er orðatiltæki sem við notum mikið fyrir vestan. Að ná tökum á vöxtum og verðbólgu er sameiginlegt verkefni stjórnvalda, Seðlabankans, atvinnulífsins og vinnumarkaðs. Verkefnið er skýrt; að halda niðri verðbólgu, halda atvinnustigi háu og viðhalda kaupmætti. Það mikilvægasta sem stjórnvöld geta gert er að skila hallalausum fjárlögum og það hyggst ríkisstjórnin gera strax á næsta ári. Seðlabankinn hefur sín tæki og þar bíta mest háir stýrivextir. Atvinnulífið verður að axla sína ábyrgð, það verður að setja sér hóflegar arðsemiskröfur og passa að launahækkanir fari ekki út í verðlagið. Þar bendir margt til þess að ýmislegt mætti betur fara og má þar nefna gríðarlegan hagnað bankanna, flugmiðar eru að hækka, matvöruverð hefur rokið upp og sama á við eldsneytisverð og orkukostnað.

Virðulegur forseti. Efnahagsmálin eru í forgrunni og verða það, sama hvað hver segir. Það eru auðvitað verkin sem tala en ekki barlómur úr Valhöll eða úr öðrum dökkum kimum samfélagsins.