157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:07]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Líkt og ég kom inn á rétt í þessu í ræðu minni undir liðnum störf þingsins þá er hér um að ræða afar stórt mál eins og bæði þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu hafa komið inn á. Það er risastórt mál sem hér er um að ræða, hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið eða ekki. Ríkisstjórnin og þingmenn stjórnarflokkanna eru að leggja það til að þjóðinni verði falið það í þjóðaratkvæðagreiðslu að taka þá ákvörðun.

Þessi vegferð hófst eins og við öll vitum árið 2009 þegar þáverandi ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sótti um aðild að Evrópusambandinu. Ég tel að það hafi verið mistök að leggja ekki þá ákvörðun í dóm þjóðarinnar, að sækja umboð til þjóðarinnar til að sækja um aðild. En ég hef mikla trú á þeirri leið sem hér er til staðar og hef talað fyrir henni lengi ásamt til að mynda öðrum þingmönnum Viðreisnar, að áður en sótt sé um aðild að Evrópusambandinu þá sé sótt umboð til þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu til að gera það, enda erum við örugglega öll sammála um það að hér sé um risastórt mál að ræða.

Síðan, eins og t.d. kom fram í ræðu hv. þm. Sigríðar Á. Andersen í gær, er það að sjálfsögðu þannig að það ferli að sækja um aðild að Evrópusambandinu er umfangsmikið, það getur kostað einhverja peninga, þannig að þá er að sjálfsögðu algerlega rökrétt að sótt sé umboð til þjóðarinnar, hún spurð hvort hún vilji leggja af stað í þá vegferð eða ekki, en ekki eingöngu tekin ákvörðun hér á Alþingi um hvort það eigi að gera það, enda um svo risastóra ákvörðun að ræða.

Síðan, eins og oft hefur komið fram áður, að því gefnu að áfram verði haldið með aðildarviðræður og einhver samningur um aðild Íslands að Evrópusambandinu liggi fyrir, þá verður hann lagður í dóm þjóðarinnar og hún gerir upp hug sinn um hvort hún vilji ganga endanlega inn í Evrópusambandið eða ekki. Þetta er leið sem ég hef mikla trú á og tel að það hefði verið miklu betra hefði þetta verið gert þegar sótt var um í fyrra skiptið.

Það hefur verið rætt hér um það hvort spurningin sé rökrétt eða ekki. Spurningin eins og hún er orðuð í tillögu þessari til þingsályktunar er: Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu eða ekki? Ég tek bara heils hugar undir það að þetta sé rökrétt spurning, enda var umsóknin aldrei dregin formlega til baka. Sú þingsályktunartillaga sem var samþykkt þegar sótt var um aðild í fyrra skiptið var aldrei felld úr gildi. Jafnframt var það staðfest af framkvæmdastjóra Evrópusambandsins, Ursulu von der Leyen, að umsóknin væri virk. Þar af leiðandi get ég ekki annað séð en að þessi spurning sé vel orðuð. Ef í ljós hefði komið að umsóknin væri ekki virk, hún hefði verið dregin formlega til baka, þá hefðum við auðvitað orðað spurninguna öðruvísi, t.d.: Á að sækja um aðild að Evrópusambandinu?

Hér hefur verið mikið rætt um dagsetningu á þingsályktunartillögunni. Til að mynda, eins og ég kom inn á áðan, hefur því verið fleygt fram t.d. að það varpi skugga á sveitarstjórnarkosningar. Því er ég bara heils hugar ósammála, enda eru um þrír mánuðir á milli. Ég hef sjálfur tvisvar sinnum verið í háskóla þegar kosið var að vori, 2016 og í sveitarstjórnarkosningum 2022. Það er einstaklega óheppilegur tími fyrir t.d. ungt fólk. Við vorum síðast með þingkosningar í lok nóvember 2024. Það var einstaklega óheppilegur tími og það leyfi ég mér að fullyrða sem þingmaður Norðausturkjördæmis þó að aðstæður hafi kannski verið öðruvísi fyrir þingmenn sem þá voru frambjóðendur á höfuðborgarsvæðinu.

Því hefur verið velt upp hvort þetta sé óheppileg dagsetning í ljósi þess að þingið er ekki að störfum. Líkt og kom fram þegar ég fór í andsvör við ræðu hv. þm. Sigríðar Á. Andersen er ég jafnframt ósammála því, enda erum við hér að að taka ákvörðun um það í þingsal að leyfa þjóðinni að taka ákvörðun um þetta. Þess vegna sé ég ekki af hverju þingið þarf að vera að störfum þegar þjóðaratkvæðagreiðslan á sér stað. En að sjálfsögðu hafa þingmenn hér skoðanir og munu beita sér. Ég mun t.d. segja já við þessari atkvæðagreiðslu og kem kannski inn á það síðar í þessari ræðu eða í næstu ræðu af hverju ég hyggst segja já og af hverju ég mun hvetja sem flesta aðra til að gera slíkt hið sama.

Ég tel þetta til að mynda vera tækifæri til að ræða um framtíð gjaldmiðlamála hér á Íslandi. Ég ætla að leyfa mér að vitna í Boris Vuj?i?, yfirmann seðlabanka Króatíu, sem var staddur á landinu um daginn og sagði í viðtali við RÚV:

„Áður en Króatía varð hluti af evrusvæðinu var Seðlabankinn aðallega í því að halda genginu stöðugu, og þegar krísuástand skapaðist, þá var það mikil áskorun fyrir lítið og opið efnahagskerfi; við þurfum að grípa mikið inn í, og þurftum að vera með stóran gjaldeyrisvaraforða, til að tryggja að við gætum sinnt þessu hlutverki, og það var kostnaðarsamt.“

Þetta hljómar nokkuð kunnuglega en til að mynda hér á Íslandi þurfum við að halda úti 1.000 milljarða króna gjaldeyrisvaraforða til þess að gera einhvers konar tilraun til að halda genginu stöðugu. Einnig segir Vuj?i?, yfirmaður Seðlabanka Króatíu, með leyfi forseta:

„Ég hef verið starfandi við Seðlabankann síðan um aldamót, og ég fékk iðulega spurninguna hvenær vextir á húsnæðislánum yrðu jafn lágir og í Þýskalandi. Í meira en tuttugu ár sagði ég fólki að það myndi gerast þegar við tækjum upp evruna. Ég er ekki viss um að allir hafi trúað mér, en eftir að við tókum upp evruna þá sjáum við að vextirnir eru sambærilegir, og reyndar aðeins lægri í Króatíu en í Þýskalandi.“

Hér hefur verið spurt hverjir kostir og gallar séu við hugsanlega inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Hér erum við með kristaltært dæmi frá Króatíu, hvers hagkerfi er stærra en það íslenska og gjaldmiðlasvæði króatíska slotsins sem áður var, að mig minnir, þar af leiðandi stærra en íslensku krónunnar.

Fyrir mér snýst þetta einnig um þetta: Viljum við vera með sæti við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar sem svo sannarlega varða okkur? EES-samningurinn er mikilvægasti viðskiptasamningur sem við Íslendingar höfum nokkurn tímann gert en hann felur að sjálfsögðu í sér að við þurfum að innleiða mikið af regluverki Evrópusambandsins án þess þó að tekið sé tillit til íslenskra aðstæðna við setningu þeirra laga og reglna. Ef þjóðin myndi taka þá ákvörðun að halda áfram aðildarviðræðum og síðan taka ákvörðun um að ganga endanlega í Evrópusambandið þá værum við ein af 28 þjóðum með eitt af 28 sætum í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, eitt af 28 sætum í ráðherraráðinu og jafnframt sæti á Evrópuþinginu.

Því hefur verið fleygt fram að ekki sé um neinar varanlegar undanþágur að ræða. Það er ekki satt. Það er einfalt að benda á dæmi. Til að mynda er Írland ekki í Schengen sem við Íslendingar erum í. Við erum utan Evrópusambandsins en samt í Schengen, að því leytinu til meira inni í Evrópusambandinu en Írar þegar kemur að Schengen-samstarfinu.

Hér hefur verið vitnað í núverandi stækkunarstjóra Evrópusambandsins, Mörtu Kos. Hún sagði nýlega, með leyfi forseta:

„Ísland er nú þegar sterkt og mikilvægt samstarfsríki og hluti af innri markaðnum. Forgangsmál Íslands eru vel þekkt og í heimi þar sem valdablokkir takast á, býður aðild að Evrópusambandinu upp á akkeri í bandalagi sem byggist á gildum, velsæld og öryggi. Samningar um aðild að Evrópusambandinu eru sértækir fyrir hvert og eitt ríki, og við tökum mið af þeim raunveruleika sem umsóknarríki búa við.“

Nú liggur þessi þingsályktunartillaga fyrir þinginu og ég mun að sjálfsögðu segja já við því að íslensk þjóð fái að taka ákvörðun, byggða á m.a. þeim staðreyndum sem ég hef farið yfir hér í minni ræðu, um hvort hún vilji halda áfram aðildarviðræðum að Evrópusambandinu eða ekki. Og síðan ef góðir samningar nást með hagsmuni Íslands að leiðarljósi þá verður sá samningur aftur lagður í dóm þjóðarinnar.