þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir sitt síðara andsvar. Samningsmarkmiðin í megindráttum liggja fyrir í greinargerð og verða útfærð í meiri smáatriðum ef þjóðin ákveður að halda áfram. Þar verður frekar skýrt að við ætlum okkur að halda yfirráðum yfir íslensku fiskveiðiauðlindinni. Síðan er náttúrlega útfærsluatriði hvernig það gæti nákvæmlega orðið, þ.e. ef Evrópusambandið er til í að fallast á það. Kannski mun Evrópusambandið leggja til breytingar á sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, alveg eins og voru gerðar breytingar á sameiginlegu landbúnaðarstefnunni við inngöngu Finna og Svía. (Gripið fram í.)
Varðandi það hvort Evrópusambandið sé að skrökva eða ekki, ég lít svo á að þau hafi ekki verið að skrökva með því að segja að umsóknin sé enn þá gild, þ.e. að við getum haldið áfram þar sem frá var horfið, þó að við séum ekki lengur á lista yfir umsóknarríki á heimasíðu sambandsins. Ég lít ekki á það sem það að segja ósatt.