157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:29]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvar sitt en hér opinberast og afhjúpast í rauninni það að hv. þingmaður hefur ekki kynnt sér málið nógu vel því að allar þær sérlausnir og mögulegar undanþágur — vissulega eru undanþágur, t.d. Danir með danska krónu, en það eru þá allt ríki sem voru í Evrópusambandinu þegar það gerðist. Ekkert umsóknarríki hefur fengið undanþágur. Þess vegna eru þetta engar rangfærslur hér í pontu, hér er það sem er rétt. Í svokölluðum samningaviðræðum ESB og umsóknarríkis er það þannig að menn hafa ekki samið um varanlegar undanþágur. Menn hafa samið um örlitlar smugur, sérlausnir fyrir fram, sérlausnir sem er hægt að strika út eins og kvóta Íra, en varanlegar undanþágur hafa ekki verið í boði. Það hafa verið varanlegar undanþágur en það er þegar ríki er komið inn í Evrópusambandið, ekki sem umsóknarríki.