157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:31]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir ræðu hans hér áðan. Hann vék í þeirri ræðu að ferlinu sem hófst hér árið 2009 og kom því skýrt á framfæri að umsóknin hafi aldrei verið dregin formlega til baka. Það var vísað í ummæli Ursulu von de Layen sem heimsótti landið í júlí á síðasta ári þar sem því var lýst yfir af sjálfum framkvæmdastjóra Evrópusambandsins að umsóknin væri virk. Það hlýtur þá að þýða að sá samningsrammi sem gerður var hér árið 2010, í því ferli sem þá var í gangi, hlýtur að gilda. Sá samningsrammi gerir ekki ráð fyrir varanlegum undanþágum frá regluverki Evrópusambandsins. Á grunni þessa ramma komu árin 2011, 2012 og 2013 út framvinduskýrslur þar sem hvergi var rætt um neinar varanlegar undanþágur. Það var bara rætt um ákveðna fresti við upptöku eða aðlögun að reglum Evrópusambandsins. Í ljósi þess að þessi umsókn er gild samkvæmt þessum málflutningi þá hlýtur þessi samningsrammi, sem um var samið 2010, að vera sá samningsrammi sem við erum þá að fara inn í ef þjóðin tekur þá ákvörðun að hefja aðildarferlið að nýju.

Ég vil spyrja hv. þingmann að því: Hvernig sér hann þetta fyrir sér? Hvernig sér hann þá fyrir sér að koma að þeim varanlegu undanþágum sem hann boðaði hér áðan, m.a. á sviði sjávarútvegs, ef samningsramminn er fastur og margyfirlýst að þar séu engar varanlegar undanþágur?