þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Svavarssyni fyrir hans andsvar. Hv. þingmaður spyr hvort samningsramminn sem gilti hér árin 2009 –2013 sé enn þá í gildi. Ég er ekki viss um að ég sé endilega rétti maðurinn til að svara þeirri spurningu. Við meðferð þingsályktunartillögunnar árið 2009 kom t.d. í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar fram mjög ítarleg umfjöllun um Evrópusambandið, um samningsmarkmið o.s.frv. Ég ímynda mér að það muni svipuð umfjöllun eiga sér stað hér í þinglegri meðferð þingsályktunartillögunnar. Ef þjóðin myndi síðan kjósa já og við höldum áfram með þessar aðildarviðræður þá tökum við að einhverju leyti upp þráðinn þar sem frá var horfið, en auðvitað eru einhver ár liðin þannig að það þarf að endurskoða ýmislegt frá því að haldið var af stað í þessa vegferð seinast.