þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki fyrir andsvarið. Varðandi upplýsingagjöf og þetta ferli sem er að fara núna af stað. Auðvitað verður þetta að vera vandað og allir aðilar þurfa að vanda þá umræðu og við hérna inni þurfum að standa vörð um það, hvort sem við erum á móti inngöngu eða með henni, vegna þess að það er lýðræðið í hnotskurn. Það er það sem við eigum að geta gert sem þingmenn. Við eigum að geta það og þannig væri Alþingi best, ef við sem erum öndvegis í þessu máli getum talað um þetta frá báðum hliðum. Þannig myndar þú þér rétta og yfirvegaða ákvörðun og skoðun á því hvert við eigum að fara. En það er mjög mikilvægt að umræðan sé heil.