157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:49]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Bara svo ég útskýri aðeins síðari spurningu mína, og ég þakka fyrir andsvar hv. þingmanns varðandi þá fyrri, þá er það sem ég er að fara einfaldlega þetta: Er ekki þingmaðurinn sammála mér í því að því meiri upplýsingar sem við höfum á þessum tímapunkti um kosti og galla við inngöngu í Evrópusambandið, því upplýstari verður ákvörðun okkar um það hvort við ætlum að fara í þessa vegferð eða ekki? Það er minn punktur. Er ekki þingmaðurinn sammála mér í því að við hljótum að þurfa að ræða innihaldsatriðin, hvort það borgi sig yfirhöfuð að vera að sækja um, borgar það sig yfirhöfuð að vera að sækja um? Og í því tilliti verð ég að vísa til orða hæstv. forsætisráðherra þar sem hún virtist vera á þeirri skoðun að það væri ekki grundvallaratriði, við þyrftum ekki að vita allt um Evrópusambandið (Forseti hringir.) til að geta tekið ákvörðun um það hvort við ætluðum að fara í aðlögunarviðræður eða ekki.