157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:51]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Helga Pálmasyni fyrir hans ræðu hér áðan. Þar sem hv. þingmaður er varaformaður utanríkismálanefndar og fulltrúi þess flokks í ríkisstjórn Íslands sem hefur það að yfirlýstri stefnu að vilja ekki að Ísland gangi inn í Evrópusambandið, þá hvet ég hann til dáða til að gæta að því að fylla duglega í upplýsingarnar sem sárlega vantar í þá þingsályktunartillögu sem hér er til meðferðar. Þar vantar í raun og veru allar upplýsingar svo borgararnir í þessu landi geti tekið upplýsta ákvörðun. En ég vil spyrja þingmanninn að því, í ljósi þeirrar eindregnu stefnu hans flokks varðandi aðild að Evrópusambandinu, hvort hann upplifi ekki þetta ferli sem hann stendur í núna sem svik við kjósendur síns flokks?