157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:54]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eiríki S. Svavarssyni fyrir seinna andsvar. Ég ætla að svara aftur á mjög einfaldan hátt. Það er að kjósendur Flokks fólksins fá núna tækifæri til þess að segja já eða nei. Það er bara ofur einfalt. Ég ætla ekki að standa í vegi fyrir því, þó að ég hafi einhverja ákveðna skoðun á Evrópusambandinu, að flokkurinn og fólkið í landinu taki lýðræðislega ákvörðun um hvert landið stefnir.