157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[14:58]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mig langar að halda áfram. Þetta er ekki efnisleg spurning, þetta er spurning um hvað þingmanninum finnst persónulega: Hvers vegna ættu ESB-ríkin 27 — og þá er ég að tala um ESB-ríkin sjálf, ekki embættismannabáknið í klúbbnum í Brussel — að sætta sig við að Ísland fengi betri díl og undanþágur í lykilmálum sem þau ekki fengu þegar þau hafa þurft að kyngja öllu regluverki sambandsins? Heldur þingmaðurinn virkilega að 27 aðildarríki Evrópusambandsins muni kyngja slíkum undanþágum fyrir Ísland? Embættismennirnir sjálfir í bákninu í Brussel hafa sagt: Það eru engar varanlegar undanþágur. Það er hægt að fá tímabundna aðlögun að regluverki Evrópusambandsins en engar varanlegar undanþágur.