157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:20]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Auðvitað þarf þjóðin að vita áður en hún kýs í sumar — þetta er ekki haust, hv. þm., ágúst er sumar. Ef hún kýs í sumar um það hvort menn ætli að halda aðildarviðræðum áfram eða ekki verðum við að vita hvert framhaldið verður, hverju við þurfum að fórna til þess að komast inn í sambandið. Þetta er ekki bara eitthvert „kíkja-í-pakkann“ eins og menn hafa frasað sig í gegnum hér endalaust. Það eru ekki fordæmi fyrir því að umsóknarríki hafi fengið varanlegar undanþágur frá samningum og regluverki ESB. Það eru ekki undanþágur fyrir því þrátt fyrir að ýmislegt sé sagt hér um það og sá sem hér stendur vændur um rangfærslur. Það er ekki rétt. Ég legg bara til að menn fari í sína heimavinnu hjá stjórnarliðunum og skoði aðeins hvað stendur á heimasíðu Evrópusambandsins til að átta sig á þessu.