157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:21]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir ræðuna sína og segja að hún var um margt áhugaverð. Hann eyddi mestum tíma sínum í það að telja þingheimi og öðrum þeim sem hlusta trú um að það væri ekkert að semja um og að ekkert vit væri í þessu öllu saman og fór hérna með alls konar staðhæfingar. Málið er að ég hef heyrt alls konar staðhæfingar og ég hef líka heyrt hina hliðina á því sem hann lýsti hér áðan. Ég er því bara með eina spurningu til hv. þingmanns í fyrra andsvari: Treystir þingmaðurinn þjóðinni til að fara með þetta mál þann 29. ágúst 2026? Treystir hann þjóðinni til að ákveða hvort við eigum að halda áfram viðræðum eða ekki?